01 · Byrjar á heitu fótabaði
Tælenskt fótanudd
Markviss þrýstipunktavinna á iljum, ristum og kálfum sem léttir á öllum líkamanum — gömul tælensk hefð fyrir þreytta fætur.
Sjö meðferðir · löggiltir nuddarar

01 · Byrjar á heitu fótabaði
Markviss þrýstipunktavinna á iljum, ristum og kálfum sem léttir á öllum líkamanum — gömul tælensk hefð fyrir þreytta fætur.
02 · Höfuð, háls og axlir
Einbeitt vinna þar sem dagurinn safnast fyrir: hnakki, herðar og efra bak. Losar um hnúta og léttir á höfðinu.
03 · Hin sígilda aðferð
Þurrnudd á dýnu eftir orkulínum líkamans — þrýstingur, teygjur og jóga í einni samfelldri meðferð. Þú ert í þægilegum fötum.
04 · Mjúkt og samfellt
Hlý olía og langar, jafnar strokur. Mýkri og rólegri en þurrnuddið — djúp slökun fyrir líkama og taugakerfi.
05 · Hlýjan sem situr eftir
Hrein kókosolía, hituð og unnin inn í vöðvana í hægum strokum. Nærir húðina og vermir djúpt — sérstaklega gott yfir veturinn.
06 · Fast og markvisst
Hægt og fast unnið á þrálátum hnútum og djúpri vöðvaspennu. Þrýstingurinn er alltaf stilltur í samráði við þig.
07 · Tvö saman í sama herbergi
Tvær meðferðir á sama tíma, hlið við hlið. Veljið á milli hefðbundins nudds, olíunudds, heits kókosolíunudds og deep tissue.
Hringdu og segðu okkur hvað er að hrjá þig — við mælum með meðferð sem passar. Athugaðu að við bjóðum ekki upp á meðgöngunudd.
Bókaðu núna
Bókaðu á netinu í gegnum Noona — það tekur innan við mínútu — eða hringdu og við finnum tíma saman.